Allt gott að frétta héðan, allir kátir og glaðir og heilsuhraustir, ég búin af ná mér af veikindunum fyrir jólin og endalaus gleði í húsinu !!
Jólin og Áramótin voru æði í alla staði og tók svo hversdagsleikinn við þann 6 jan, vinna og leiskóli, ég er líka að taka 3 fög í fjölbraut í grundó og ætla ég að stefna á útskrift vorið 2010, ekkert að stressa mig. Skólinn gengur alveg ljómandi vel, betur en ég þorði nokkurn tíman að vona og hlakkar mig bara mikið til að byrja í Háskólanum, sem verður vonandi haustið 2010 ef allt gengur vel og upp !!!
Heyrði í Guðrúnu Svönu danabúa um daginn og var gaman að heyra í henni, ég er alveg að fara að kaupa mér heimasíma Guðrún svo ég geti hringt frítt í þig...hehe.
Það er bara allt að gerast í stjórnmálum, ríkisstjórnin fallinn og Jóhanna Sig orðin forsætirráðherra, já hennar tími er kominn eins og hún hrópaði hérna um árið !!
Rut vinkona að fara að flytja frá mér á sunnudaginn og ætlum við að elda einhvað rosa gott saman á laugardagskveldinu, alltaf gott að borða, verður einmannalegt þegar hún fer, allar vinkonur mínar að flytja einhvð, hvað er málið ?? er einhver áróður í gangi, sem heitir "höfum Birnu eina í hólminum" maður spyr sig.
Þorrablótin að nálgast og ætla ég örugglega að mæta á skildi, sé samt til, er að halda upp á afmælið hans Ármanns þarna á sunnudeginum, ég ætla ekki upp á hótel þetta árið, á engann kjól er með ljótt hár og feit og allt ómöglegt svo það er best að sleppa því bara...en talandi um ljótt hár þá er ég að fara í klip og lit þann 2 feb hjá maríu guðrúnu.
Mig langar aftur til útlanda í sumar....til spánar auðvita...
Ég var í sumarbústað á sl. helgi í munaðarnesi með saumaklúbbnum fríðu og það var svaka stuð á okkur, eldaður var geggjaður matur, farið í pottinn, sungið í singstar, sem ég ætla btw að kaupa mér þegar ég fer næst í bæinn !!! það var bara rosa gaman...
´jæja ætla að halda áfram með lærdóminn.
Adios.
28. janúar 2009 klukkan 21:34
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 1 athugasemd
Gleðileg jól allir saman, loksins dröslast ég til að skrifa einhvað herna.
Það sem liðið er af jóluum er búið að vera alger gæðatími, vorum hja mömmu og pabba a aðfangadag og borðuðum svína hrygginn, hann var góður eins og alltaf, svo var jólaboð í gær og þar var líka gúffað í sig.
Ég var mjög sátt við allar mínar gjafir í ár og krakkana einnig, aldrei verið jafn ánægð held ég.
Annars var jólaundirbúningurinn með örum hætti þetta árið vegna veikinda hjá mér og krökkunum líka við láum öll veik vikuna fyrir jól og allir orðnir hressir, ég var með pensilín í æð í 6 daga 3svar á dag og geri aðrir betur, ég hálf sakna gömlu kellingana upp á spitala.
En þessi tími ársisn og veikindi er svo sem ekkert nýtt af nálinni, í fyra fékk ég steptakokka sýkingu fyrir jólin sem kostaði mig 15 daga á pensilíni og magaverk eftir því og jolin 2006 var Ármann með lungnabólgu, verður spennandi að sjá hvað verður næstu jol..hehe...vona samt að það verði ekki neitt.
jæja verð að hætta, ekta kakóbolli kallar á mig.
vona að allir hafi það sem allra allra best.
L8ter
26. desember 2008 klukkan 15:08
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 1 athugasemd
jæja letin að ganga frá mér !!!!! algerlega að drepa mig !!....ég er því vel afsökuð !
en margt hefur á daga okkar drifið hér í mekku...t.d :
* leiksýning, fór á eitt stk svoleiðis og fór mjög sátt heim, enda skiluðu allir sínu mjög vel, ég vona að þetta sé komið til að vera, samstarf grunnskólans og leikfélagsins, ég vona að börnin mín fái í framtíðinni að taka þátt í félagslífi sem þessu og eiga allir sem að þessu koma bara stórt klapp skilið...sérstaklega Villi því hann söng, og skilaði því bara frábærlega, það er nú ekki frásögufærandi en við erum í dúett sem heitir "þeir sem kunna ekki að syngja" tónleikar auglýstir síðar
* Ég er á fullu í prjónaskapnum, er búin að prjóna frá mér allt vit, nú gapa eflaust einvherjir.
* Jólahlaðborð: fór upp á hótel sl. föstudag á jólahlaðborð með saumó, það var geggjað !! át á mig gat og gott betur, fór fyrst heim því ég át yfir mig og alltof hratt, ég meina....hvernig er þetta hægt !! sé enþá eftir þessu og bráðum að koma vika síðan.
* kíkti á hana Marí mína Guðrúnu í klipp og lit og er bara ánægð með árangurinn, keyrði í fljúgandi hálku og var heillengi á leiðinni...en komst lifandi fram og til baka, en þetta var ágætisferð, fyrir utan helvítis fíbið sem var að keyra rútuna þetta kvöld !! ég vona að hann sé að lesa þetta, lét mig bara heyra það í sjoppunni í ólafsvík fyrir að keyra með háu ljósin fyrir aftan hann, halló ekki eins og ég hafi ætlað að gera það !! fíbl og fáviti....læt hann heyra það næst þegar ég sé hann, ég fekk ekki einu sinni tækifæri til að biðja mannskrattann afsökunar...en hann var allavega ekki hólmari svo það er nú skiljanlegt að hann sé stórskrýtinn.
* krakkarassgötin mín dafna vel og stækka og þroskast með degi hverjum, Ármann farinn að biðja um að fara til afa og ömmu...heheh..ekki það að honum leiðist það ekki, en hann hefur aldrei beðið um það sjálfur, Hafdís mín er alltaf jafn dugleg og er byfjuð að skirfa nafnið sitt en það kemur fyrst H svo A og F bara öfugt skrifað svo kemur D og Í og S fyrir framan H-ið...en það stendur samt semáður Hafdís þarna, ég skrifaði nú birna alltaf öfugt semsé anrib. flottar mæðgur, svo er manni litli orðinn rosalega duglegur að pissa og kúka í klósettið.
* ég vil líka óska henni írisr símonar með litla kútinn sinn sem hún átti í gær að ég held.
* foeldrafélaðið stóð fyrir fyrirlesti í gær frá blátt áfram, sem eru sjálfstæð félagssamtök og berjast gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum, hann skildi mikið eftir sig og heði ég nú alveg viljað sjá fleiri foreldra, skammist ykkar bara, maður má ekki láta svona málefni framhjá sér fara, og samkvæmt tölfræðinni þá eru um 50 börn hér í stykkishólmi sem eru eða hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi...og hvar eru þau börn ???? einhverstaðar eru þau greyin að berjast við skömmina.
* Ég náði í jólaskrautið mitt um helgina og setti upp svona sitt lítið af hverju og fólk er búið að kveikja svolítið á jólaljósum, en vá hvað ég er orðin þreytt á þessum hvítu perum, af hverju getur fólk ekki haft þær marglitar eða rauðar eða einhvernveginn öðruvísi en hvítt, það er allt orðið hvítt !! ljótt.is...en það er bara mín skoðun, sitt sínist hverjum.
jæja læt þetta duga í bili enda er ég að vinna.....eða á að vera að vinna.
l8ter
25. nóvember 2008 klukkan 11:17
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 3 athugasemdir
loksins gerist einhvað í hausnum á mér..hehe það er ekki laust við að það sé kreppa í höfðinu á mér líka....já en hérna kemur eitt blogg á okkar verstu og síðustu dögum....... Nánar
15. október 2008 klukkan 22:11
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 2 athugasemdir
En ég komst að einu að systrum mínum finnst ekkert skemmtilegra en að kenna saklausum börnunum að pósa fyrir framan myndavélin og að mér finnst standa þau sig sko vel í pósinu.
annars ekkert að frétta, er búin að finna mér nýtt hobby sem er að prjóna og er eg að fara að byrja á svaka skvísu vesti á moi !! verð svaka pæja í því, en það er skemmtilegt að prjóna, hefði nú aldrei dottið það í hug, svo núna nota ég allann minn frítíma í prjónana !!
Á næstu helgi er það kaffi flóra, skautar, fínt út að borða, hótel og húllumm hæææ....
Gleði efni dagsins er svo það að dagvaktin er í kvöld, síðasti þáttur var bara fyndinn !! elska þessa vitleysi.
Helgin sem er að líða er búin að vera frekar einhæf, er búin að vera að passa jón agnar hennar rutar...úúúfff !! að vera með 3 grísi er meira en að segja og hef ég staðið á haus alla helgina, er sma frí núna þar sem að jón er sofandi og krakkarnir mínir upp í sveit í matarboði með pabba sínum, lovely að vera einn með sjálfum sér hérna, gat horft á nágranna og allt óáreitt !!! hefur ekki gerst veit ekki hvað lengi !!
Ég afrekaði að baka um helguna eina skúffuköku og jógúrtkökur til að eiga með kaffinu og var þetta ágætis hugmynd hjá mér, enda elska ég að éta á mig gat og sat einmitt kl. 23.00 í gærkvöldi að gúffa í mig jógúrtkökur sem ég skolaði svo niður með kóki aha !!!! en átak er í aðsigi og er mín að byrja mánudaginn 6 okt í svaðalegu átaki !! hlakka ekkert svakalega til en samt geri ég það.... !! nú fá 15-20 kg að fara....
jæja kæru vinir og vandamenn er með SLATTA af myndum sem ég þarf svo að koma hingað inn, til að mynda af sumrinu 2008, afmælinu hennar Hafdísar, spáni og margt fleira !!
L8ter
28. september 2008 klukkan 14:47
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 5 athugasemdir
en kötturinn er nú kominn heim og er alsæll með lífið og tilveruna, hefur ekki fengið að fara út síðan hann kom heim og er ekki sáttur við það, ætla að láta gelda greyið áður en hún fer nokkuð út, nenni ekki að standa í kettlinga veseni.
Myndirnar eru alveg að koma, eftir helgi, er svo mikið að gera einhvað núna, brjálað að gera við að undirbúa afmæli handa prinsessunni minni, sem er btw að verða 4 ára á morgunn, þann 13. september !! ótrúlegt alveg, þetta finnst manni á hverjum afmælisdegi !!
Annars er allt gott að frétta hérna hjá okkur, veturinn bráðum að koma og svona "skemmtilegheit" svo fer að líða að rvk ferð okkar í vinnunni, hlakka svo til !!
L8ter
jæja læt heyra betur í mer eftir helgi, segi þá frá hvernig afmælisundirbúningurinn gékk !! það á að vera hello kitty kaka á boðstól svo ég má vanda mig !!! hihi
12. september 2008 klukkan 17:47
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 3 athugasemdir
Þar sem að enginn nennir að kommenta lengur hérna, þá hef ég ákveðið að láta gott heita um spán og engar myndir fyrr en ég fæ allaveg 10 komment !! hana nú ! fáið ekki myndir aldarinnar frítt !!! ónei.
Annars allt gott að frétta, óskup rólegt allt saman, jú ef einhver kann á FACEBOOK....mega kíkja í kaffi eða spjalla við mig á msn !! er ekkert að bortna í þessu rugli.
Vinnann byrjuð á fullu og erum við að fara suður í skemmtiferð þann 4 okt...hótel. leikhús, gott að borða og ball...sjibbí !!!
hlakka til !!
Svo á Hafdís Birta afmæli nuna 13 sept og verður haldið smá teiti að því tilefni....4 ára skvísan, tíminn líður alltof fljótt !! men ó men.
hef ekki tíma í þetta núna...og munið að kommenta, annars fýkur í mig
L8ter
01. september 2008 klukkan 21:09
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 10 athugasemdir
Það er nokkuð gott að vera komin heim og anda að sér fersku og góðu lofti og drekka gott og ómengað vatn, hefði samt alveg viljað vera aðeins lengur, svona 2-3 dögum lengur, held að 10 dagar séu passlegur tími.
Við hófum ferð okkar þann 20 ágúst á því að bruna til rvk og gistum þar um nóttina hjá henni Jónu Grétu og auðvita Jökli, get nú ekki gleymt honum. Kl. 05.30 þann 21 ágúst vorum við sko mættar galvaskar upp á Bsí á leið í fly bus-ið sem ætlaði að skutla okkur á völlinn !! vorum mættar akkurat 2 tímum fyrir flug og glugum til Malaga kl. 9.00 um morguninn, flugtakið og flugið gékk vel, en þegar að lendingu kom héldum við að lífi okkar myndi ljúka, héldumst í hendur, báðum til guðs um að hjálpa okkur, svitnuðum og öskruðum af hræðslu, átæðan var óvenju mikill hristingur á vélinni að okkar mati og á meðan þessu stóð sat krakka asninn sem fór í taugarnar á okkur allt flugið og hló að okkur. Þegar við lentum á spáni og gengum í gegnum ranann tók á móti okkur þessi líka viðustyggilegi hiti !!! og svo var bið eftir töksunum og úuffff....svitabaðið, við héldum að þetta myndi nú heldur betur lagast þegat út var komið, en það var langt frá því, það var heitar úti en inni og sáum við þá ekki neitt annað í stöðuni en að fækka fötum og fórum úr íslensku íþróttapeysunum okkar(það er alltaf kalt í flugvélum) við tókum svo rútu upp á hótel
hentum dótinu inn og beint í sumardressið og út að skoða okkur um, löbbuðum niður á strönd og í supermarkaðinn og keyptum okkur bjór, fórum upp á hótel með stoppi reyndar á Burger King sem var þó nokkuð oft komið við á, fórum í alveg eins kjólana okkar sem við keyptum okkur fyrr um daginn og opnuðum okkur kaldan bjór úti á svölum, sem var reyndar ekki kaldur nema í ca 5 mín, það var sssvvvooo heitt !!
kíktum svo eftir nokkra bjóra út fyrir og kíktum á markaðslífið, það er allt morandi af þessum litlu markaðsbásum og það er nákvæmlega saman varan í hverjum einasta. Við skelltum okkur svo á hressansi asna bak
María tók sig vel út á sínum asna og fór nokkra hringi.
Svo enduðum við kvöldið á því að kíkja inn á einn af ca 1000 strandbörunum og fengum okkur einn kokteil
Það var svo vaknaði snemma á Föstudeginum til að fara á kynningarfund með fararstjóranum, þar var okkur boðin sandgría sem er einn mest viðbjóðslegasti drykkur sem ég hef smakkað á æfi minni. kíktum svo aðeins í bæinn og svo auðvita láum við á ströndinni það sem eftir lifði dags, út að borða á rosa góðum veitingarstað og varð pizza fyrir valinu eins og svo oft áður, enda bestu pizzur sem við höfum fengið á spáni
Föstudagskvöldið var svo rosa skemmtilegt, kíktum á íslendingabar sem heitir því skemmtilega nafni víkinga barinn og þar hittum við svo eigandann sem er ungur strákur að nafni Bibbi, og btw hann er alveg eins og jhon travolta í framan
, þarna hittum við svo nokkra íslendinga, þau Önnu, Arthúr og Ella kafara og við skelltum okkur svo saman á einhvern klúbb og þar var okkur tekið eins og kóngafólki því við vorum íslendingar "JJJóóó icelanders " var kallað þar sem við komim MJÖG fyndið og kjánalegt !!! Hópurinn fyrir utan víkingabarinn.
jæja læt þetta duga í bili kemur framhald á næstu dögum bæði í máli og myndum
Adios
29. ágúst 2008 klukkan 22:33
Birna Ármey Þorsteinsdóttir 1 athugasemd
Hjúskaparstaða: Single....en í sambúð með Hafdísi Birtu og Ármanni Guðna, börnunum mínum.
Um mig: Birna_Armey@hotmail.com.....msnið og þið komist bara að því.
Annað: Ég er kannski minni en þú, ég er kannski yngri en þú, ég er kannski ekki jafn fullkomin og þú, ég er kannski ekki jafn vinsæl og þú, þrátt fyrir það hef ég meira stolt því ég þarf ekki að rakka einhvern niður til að líta betur út !!!!